"Við hjónin höfum verið búsett í Grikklandi síðan 2018, bæði í Larissa og Aþenu. Á þeim tíma höfum vð fengið að kynnast grískri menningu, matargerð og hversu mikið er í boði af fyrsta flokks gæðavörum.
Í byrjun sumars 2021 hófum við að flytja inn grísk vín. Við vildum gera grísk gæðavín aðgengileg Íslendingum en úrval gríska vína, sem og annarra vara, hefur verið takmarkað á Íslandi. Við höfðum alltaf í huga að auka við vöruúrvalið undir einu merki og til varð Sigma ekta grískt. Nafnið Sigma kemur vegna þess að það er samheiti yfir S í gríska stafrófinu en fyrirtækið okkar heitir S ehf. Ekta grískt kemur síðan vegna þess að okkar vörur eru framleiddar í Grikklandi, úr grískum hráefnum, með grískri ástríðu, þar með ekta grískar.
Okkar markmið er að bjóða Íslendingum upp á fyrsta flokks gæðavörur frá Grikklandi."
- Sandra og Ömmi