Rauðvín

Naoussa

Létt og arómatískt rauðvín frá Kir-Yianni með rauðum ávöxtum, mildu tanníni og eftirbragði sem endist. Vínið parast vel með flestum mat en er líka gott eitt og sér. 

Þrúga: 100% Xinomavro
Styrkleiki: 14%
Árgangur: 2017
Aldursmöguleiki: 5-8 ár
Eining: 750 ml

 

 

Naoussa_Kiryianni

 

Diaporos

kraftmikið þurrt rauðvín frá Kir-Yianni.

Djúprauður litur með fjólubláum litbrigðum. Arómatískur ilmur sem samanstendur af vanillu, súkkulaði, eik og jarðaberjakeim sem er dæmigerður fyrir ungt Xinomavro með hinti af blómum s.s. fjólu. Syrah bætir við krydduðum karakter og lengir eftirbragðið. Sýruríkt vín með langan aldursmöguleika.

Vínið parast til dæmis vel með rauðu kjöti, villibráð, pottréttum og hörðum ostum.

Þrúga: Xinomavro 87%, Syrah 13%.
Styrkleiki: 14,5%
Árgangur: 2017
Aldursmöguleiki: 10-15 ár
Eining: 750 ml

 

 

Mm

þurrt rauðvín frá Domaine Sigalas með flauelskenndri áferð. Hárauður litur, ilmur samanstendur af þroskuðum rauðum ávöxtum, kryddi, tanníni og sýrustigi í góðu jafnvægi.

Vínið parast til dæmis vel með rauðu kjöti, mjúkum ostum og bragðmiklum miðjarðarhafsmat.

Þrúga: Mavrotragano 60%, Mandilaria 40%
Styrkleiki: 14%
Árgangur: 2018
Eining: 750 ml

 

Hvítvín

Assyrtiko

Ferskt og tært hvítvín frá Kir-Yianni með ferskri sýru, steinefnum, sítrusávöxtum og keim af blómum.

Vínið parast til dæmis vel með sjávarréttum, pasta, salati og mildum ostum. 

Þrúga: 100% Assyrtiko
Styrkleiki: 13%
Árgerð: 2019
Aldursmöguleiki: 3-4 ár
Eining: 750 ml.

 

 

 

Santorini

Kraftmikið Assyrtiko vín frá vínekrum Santorini sem einkennast af eldfjallajarðvegi sínum.

Vínið parast til dæmis vel með fisk og hvítu kjöti.

Þrúga: 100% Assyrtiko
Styrkleiki: 14%
Árgangur: 2020
Aldursmöguleiki: Yfir 6 ár
Eining: 750 ml.